Glit er löngu landsfrægt fyrir hraunkeramik sitt og er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði sem byggir á áratuga gamalli reynslu. Það eru mörg ár síðan við hættum að framleiða keramik, þess í stað hefur fyrirtækið einbeitt sér að þjónustu við leirkerasmiði - jafnt fagfólk sem frístundafólk. Einnig höfum við bætt inn í starfsemina glerbræðslu og erum með allt sem tilheyrir gleri - einnig svokölluðu tiffanys (skrautgleri).
Í verslun okkar höfum við yfir 60 tegundir af leir, 5 tegundir af gifsi, ýmis verkfæri, hráefni til glerungagerðar, tilbúna glerunga, bækur og m.fl. Við seljum einnig leirbrennsluofna, stýringar og hillur í ofna. Viðgerðarþjónusta fyrir ofna. Við höfum flest það sem leirlistafólk og áhugafólk um leirmunagerð þarf í listsköpun sinni.
Glit hefur verið með glerbræðslunámskeið sem notið hafa gífurlegra vinsælda frá því á árinu 2000. Við höfum til sölu bræðslugler, allt efni til skreytinga og mótagerðar o.fl., verkfæri og ofna fyrir glerbræðslu. Einnig höfum við til sölu gler, tin, verkfæri og fleira sem þarf fyrir skrautgler (tiffanys). Auk þessa erum við með ýmislegt fleira sem áhugavert er fyrir handverksfólk, sem dæmi má nefna: gifs, gifsmót, gler fyrir skartgripi, o.fl. Það nýjasta er skartgripaefni: hraunperlur, náttúrusteinar, kórallar og margt fleira, ásamt efni til frágangs, silfur, gúmmísnúrur, o.fl.
Við erum með rúmgóða og bjarta vinnustofu. Þar höldum við námskeið bæði í leirmótun og glerbræðslu. Höldum einnig námskeið í glerperlugerð, skartgripagerð og fleiru. Einnig höfum við opna vinnustofu með leiðbeinanda fyrir þá sem eru orðnir sjálfbjarga í meðferð á leir eða gleri. Fyrir þá sem ekki eiga ofn höfum við sett upp brennsluþjónustu, þannig að við tökum muni í brennslu, bæði leir og gler.
|